|
|
23.07.2008 16:25:46 / slaugabeib
Jæja maður er nú loooooksins dottin í sumarfrí  Byrjaði um helgina þannig að minn fyrsti frídagur var núna á mánudaginn, agalega ljúft... búið að bíða lengi eftir þessu, maður var ansi farin að bíða eftir að komast í frí. Jóna Ríkey búin að vera í fríi í tvær vikur og vera hjá ömmu eða ömmum sínum og Axel dettur ekki í frí fyrr en um næstu helgi... ohhh ekkert smá langt að bíða þangað til. Mamma var hjá okkur alla síðustu viku og var nýtt alveg óspart i að passa, til þess að við Axel gætum verið eitthvað saman í fríi varð þetta að vera svona og JR var farið að lengja mikið eftir að mamma kæmist í frí og launaði mér það svo með því að verða veik  Vaknaði kl: 05:30 og komin með hita og fjör þannig að við mæðgur höldum okkur bara innandyra í blíðunni, en það er ekkert við því að gera. Ætlum að leggja land undir fót eftir helgina og leggja í ferðalag með nýja fellihýsið, allavega nýja fyrir okkur. Vorum s.s að fjárfesta okkur í fellihýsi, reyndar notað en mjög fínt og gáum 550 þús fyrir það, alveg passlegt, tími ekki að eyða meiri pening í það, mjög fínt og vel með fortjald fylgdi með. Þannig að það verður lagt í hann á mánudaginn og stefnan tekin suður á bóginn ef veður verður í lagi annars förum við bara þangað sem veðrið verður gott. Planið er að fara í borgó og svo til Halldóru og stoppa einhverja daga hjá henni og svo ætlum við systur og fjölskyldur að skella okkur í útilegu um versló, reyndar ekki ákveðið hvert, allt eftir veðri ótrulegt en satt. Annars voru Halldóra og Gunni að koma heim frá Marmaris þannig að það verður alveg sama hvert við förum því þeim finnst örugglega allsstaðar kalt eftir 45 stiga hita í 2 vikur.... Ætlum svo að vera komin heim um fiskidagshelgina og þá er vinafólkið úr Borgó að koma norður og ætlar að vera í sumarbústað í viku, Guðný, Geir, Erla og Hálfdán allavega og þá verður nú eitthvað tekið á því reikna ég með, svo eyðir maður síðustu frídögunum bara í afslöppun og fer svo að vinna aftur 18 ágúst alveg endurnærður vonandi.... Jæja það er best að sinna litla sjúklingnum... meira seinna... enda tími til kominn
»
27.04.2008 22:58:58 / slaugabeib
Kæru vinir nær og fjær
Gleðilegt sumar 
»
21.03.2008 10:30:27 / slaugabeib
Fjölskyldan í Furulundi 5A er risin úr veikindum... jibbýý... svona að mestu allavega. Húsmóðir á enn eftir að losa sig við smá kvef og væri alveg til í að fá bragð og lyktarskyn sem fyrst aftur en það hefur ekki farið mikið fyrir því í heila viku. Er ekki langt í að hún fari að örvænta verulega. Tengdó hafði það á orði hér að hún þekkti eina sem fékk svo slæma flensu að hún fékk bragðskynið aldrei til baka nema að smá hluta... uppörvandi eða....? En við ætlum að njóta páskana og gera eitthvað skemmtilegt og borða góðan mat og tala nú ekki um öll páskaegginn sem eru mætt á heimilið. Jóna Ríkey var búin að fá eitt og svo kom eitt frá afa í Borgarnesi, við hjónakornin deilum saman einu og svo koma Ásta með að ég held 2 stk, þannig að það verður tekið á því á nammidaginn... Ásta er sem sagt í heimsókn hjá okkur yfir páskana og það er bara fínt, mútta var að vinna eitthvað svo að hún ætlaði svo að skella sér í borg óttans og eyða páskunum þar hjá systrum sínum. Halldóra og fjölskylda er úti í DK um páskana. Ég þarf nú eitthvað aðeins að kíkja í vinnunna, ef ég hef þá ennþá vinnu... he he... er búin að vera í veikindum meira og minna það sem liðið er af mars, en svona gerast hlutirnir bara. En það verður örugglega á nógu að taka þar eftir páskana. Fallegt veður úti í dag föstudaginn langa og fjölskyldan er að hugsa um að skella sér í göngu með þá stuttu á snjóþotu en það snjóaði aðeins hér í gær, reyndar var hálfgert leiðindaveður hér í gær. Við segjum við ykkur öll... Gleðilega páska. Kveðjur Áslaug, Axel og Jóna Ríkey
»
08.03.2008 16:36:15 / slaugabeib
 Þá er maður orðin laus við "vinkonu" sína flensuna, loksins og lífið komið í þokkalegt horf aftur. Það liggur við að maður þurfi endurhæfingu eftir þetta svo lengi er maður að ná upp almennilegum krafti aftur, en það þýðir ekkert væl og t.d er nóg að gera í vinnunni þegar maður er búin að vera í burtu í 4 daga og þessar elskur voru fegin að fá mig aftur... en ekki hvað. Síðan þurfti nú að taka góðan skver á heimilinu í þrifum og við hjónakornin búin að dunda okkur við það í morgun og nú er bara verið að slaka á. Nammidagur í dag þannig að við ætlum að elda okkur rosa góðan mat í kvöld og borða á okkur gat..... nammi namm. Nú nálgast páskar og ætli ég verði ekki með einhverja ættingja hér um páskana, liggur ekki alveg ljóst fyrir nema að Ásta ætlar eitthvað að láta sjá sig, kannski mamma verði eitthvað... veit ekki með það. Pabbi gamli hefur nú ekki verið mikið að þvælast fyrir mér hér fyrir norðan þannig að ég á nú ekki endilega von á honum og hvað þá þegar hann er orðin svona ráðsettur, sjáum til. Jóna Ríkey er hjá Hildi vinkonu sinni hér hinum megin við götuna, þær eru miklar vinkonur og leika sér mikið saman. Þetta er náttúrulega bara æðislegt hverfi sem við erum í og alveg fullt af krökkum hér í götunni sem eru a sama leikskóla og Jóna Ríkey þannig að það er fullt hægt að leika sér og á sumrin þá sést hún varla, þau eru úti allann daginn, bara gaman. Kveðjur úr Furulundinum Áslaug
»
01.03.2008 18:37:02 / slaugabeib
Ég segi nú ekki annað... það er náttúrulega algerlega til skammar þessi bloggleti sem hefur herjað á heimilinu, en nú liggur maður veikur heima og er að deyja úr leiðindum þannig að manni er nú ekki vorkun að skella inn nokkrum línum. Var að horfa á bikarleikina á handbolta, bara skemmtilegir leikir og mér fannst stelpuleikurinn skemmtilegri, framararnir ekki alveg klárir í dæmið í karlaleiknum þannig að hann var nú bara tekin svona með öðru auganu. Stubban mín fór með ömmu sinni og afa og er búin að vera hjá þeim í dag, þau eru náttúrulega bara yndisleg og hafa svo gaman að hafa hana að þeim þótti nú ekki slæmt að geta haft hana í dag svo ég gæti nú bara legið með tærnar upp í loft, það er nú ekki eins og hún sé eitthvert smábarn lengur komin á fimmta ár pæjan og alveg rosalega góð að hjúkra mömmu sinni. Húsbóndin er að sjálfsögðu að vinna hvað annað, búin að vera ansi strembin törn núna síðustu helgar, en það sér nú fyrir endann á því og við erum að vona að páskarnir verði alveg fríir, kominn tími til að vera heima í faðmi fjölskyldunnar. Annars gengur nú lífið sinn vanagang þannig... við Axel erum á fullu í átaki, eiginlega tekið okkur algerlega í gegn með góðum árangri og það er bara fínt og gaman. Axel er nú aðeins með forskot á mig en það er nú bara þannig með þessa kalla þeir eiga auðveldar með þetta. Við fórum til Reykjavíkur í byrjun febrúar á árshátíð Eimskips, það var rosalega gaman, fullt af fólki héðan að norðan, gist á hótel loftleiðum og árshátíðin sjálf var í Vodafone höllinni, meiriháttar flott og við erum að tala um að það voru yfir 1000 manns á þessari hátíð engin smá fjöldi. Helgina eftir skelltum við okkur svo í Borgarnes í brúðkaup... he he..  en pabbi og Inga Finna tóku upp á því að gifta sig þann 8 febrúar s.l og við skelltum okkur í nesið og þvílíka veðrið maður minn.... gjörsamlega klikkað veður, maður var bara búin að gleyma hvað þessu ógeðslega mikla roki og rigningu sem gerir þarna fyrir sunnann og ég skil alveg að fólk hafi verið búið að fá nóg af þessu veðri ég stoppaði eina helgi og maður var orðin þunglyndur á öðrum degi... en vonum að þetta verði nú ekki svona stormasamt hjónaband. Búið að bjóða fullt af fólki á þorrablót og engin vissi hvað til stóð nema við börnin og þetta heppnaðist allt vel nema einhver afföll urðu af gestum vegna veðurs. En þetta var bara gaman. Allt á kafi í snjó hjá okkur núna þessa dagana og það er búið að snjóa meira og minna í dag, en svaka gott veður samt. Við Rannveig og Birna kíktum á Mæju um daginn og skoða litlu snúlluna, hún er voða sæt og gengur bara vel... allir að eiga börn í kring um mann þessa dagana, þetta er eitthvað að ganga, bæði Birna og Eydís eiga von á sér í maí ( góður mánuður reyndar ) en nei ég er ekki í þessum pælingum ef einhver spyr sig að því ..... voða sátt með mína. Mamma er að hugsa um að skella sér norður eftir helgina þ.e.a.s ef maður verður orðin hress og ég brjálast nú ef svo verður ekki, alveg það leiðinlegasta að hanga svona lasin  en maður á nú ekki að vera að þessu kvarti.... Jóna Ríkey er alveg eldspræk og hún er orðin svo fullorðinn OMG... það eru nú engir smá stælar í minni núna, pæjustælar, máta föt, vilja ekki fara í þetta heldur hitt og þess háttar. Búin að vera rosalega dugleg að sofa alltaf í sínu rúmi allar nætur, var orðið þannig að hún kom alltaf uppí hjá okkur og vildi vera þar þannig að ég setti á legg svona broskallaleik og hún fékk einn broskall á morgnana ef hún vaknaði í sínu rúmi og svo fékk hún verðlaun þegar hún var komin með viss marga. Þetta svínvirkaði og nú er þetta ekki málið og hún er meira að segja hætt að biðja um broskalla. Mikið er mig farið að langa til að kíkja út til Sibbu .... Er búin að vera að tala um að skreppa svona kellingaferð og Birgitta þvílíkt til, en kannski verður eitthvað erfiðara að fá RJD með, eða hvað heldurðu um það Sibba ? Annars var nú búið að ákveða á þessu heimili að engar utanlandsferðir yrðu í ár en það hefur nú verið talað um það áður og á síðasta ári urður þær þrjár talsins... Barcelona, Danmörk og Kína, þannig að aldrei að segja aldrei hvað það varðar. Jæja nú er ég að hugsa um að fá mér eitthvað í svanginn þó ég finni hvorki bragð eða lykt, frekar fúlt, en maður verður að nærast. Bið að heilsa ykkur kæru vinir Slaugan
»
17.01.2008 21:17:46 / slaugabeib
Strákarnir "okkar" já svona er það........... Ég er gjörsamlega tryllt yfir þessum leik, Svíar gjörsamlega slátruðu okkur....... ömurleg spilamennska hjá okkar mönnum sóknarlega og menn voru bara ekki klárir.... En maður verður að reyna að vera jákvæður, sjáum hvernig fer á laugardaginn.  Hef ekki skap til að skrifa meira í þessari lotu það gæti orðið eitthvað skrautlegt. Kveðja frá hinni geðgóðu
»
29.12.2007 17:06:18 / slaugabeib
Það er aldeilis búið að vera nóg um að vera hjá þessari fjölskyldu síðustu daga. Jólin að sjálfsögðu með allri sinni dýrð og náttúrulega 4ra ára afmæli hjá heimasætunni. Það er búin að vera alveg gríðarlegur spenningur á heimilinu fyrir þessu öllu saman hjá þeirri stuttu og það var nú bara þannig þessa síðustu daga fyrir jól að hún var alvega að tapa sér. Síðan gekk þetta allt yfir og nú er eins og það sé hálfgert spennufall búið að vera því hún hefur það mjög gott og hefur sofið til 10 á morgnana og í morgun þá rumskuðum við mæðgur ekki fyrr en klukkan hálf ellefu, letin alveg að fara með mann enda var alveg stíf dagskrá um jólin. Tvö jólaboð á jóladag og svo héldum við upp á afmælið á annan dag jóla og svo var maður bara allt í einu mættur til vinnu aftur.... var svo í fríi í vinnunni í gær og við Jóna Ríkey lágum sko með tærnar upp í loft og höfðum það gott Við ætluðum að fara suður í Borgó en vorum svo löt að við bara nenntum ekki af stað... enda Axel að vinna í gær. Ætluðum nefnilega að koma heim á sunnudaginn en það er svo rosalega leiðinleg spá að við bara ákváðum að salta Borgarnesferðina fram yfir áramót. Jólin voru mjög yndisleg og hér var pakkaflóðið þvílíkt en sú stutta var nú ekki lengi að afgreiða þá.. Þetta er nú alveg vertíð hjá henni. Mamma var hjá okkur yfir jólin og það var bara fínt. Við ætlum nú bara að hafa það gott um áramótin, tengdaforeldrar mínir ætla að vera hjá okkur í mat og það var sko ákveðið að í matinn yrði ekkert sem væri reykt eða saltað, allir komnir með meira en nóg að því þannig að við ætlum að elda okkur lambafile með alles, nammi hvað mig hlakkar til að borða það. Síðan verður kíkt á brennu og auðvitað horft á skaupið eins og venjulega og svo skotið aðeins upp. Jóna Ríkey er voða drjúg með sig núna og þykist ekkert vera hrædd við flugeldana en við sjáum hvað setur, hún hefur nefnilega verið svo rosalega hrædd við flugelda að hún gjörsamlega sturlast og á síðasta gamlárskvöldi þá skreið hún undir rúm og vildi bara vera þar, ekki fræðilegur að fá hana út hvað þá bara út í glugga, en vonandi verður þetta skárra núna en ég á svo sem ekki von á því. Sendum ykkur jólakveðjur og gleðilegt nýtt ár Kveðja Áslaug
»
23.11.2007 10:44:48 / slaugabeib
Hæ hæ Maður er nú farin að verða fyrir einelti hér á síðunni og þó sérstaklega frá henni litlu systur sem hefur EKKERT efni á að láta svona þar sem hún bloggar ekki neitt sjálf og mun lengra siðan heldur en ég En litla sys takk fyrir öll þessi skemmtilegu comment og haltu nú áfram að b aka. Heimilið komið aftur í stand eftir framkvæmdirnar og þetta er engin smá munur, rosalega flott og herbergið hennar jónu Ríkeyjar eins og prinsessum sæmir og hún er ekkert smá ánægð með það og meira að segja búið að setja upp jólaljósin. Gerðumst svo dugleg hjónin að gera hreint hjá okkur í vikunni enda ekkert smá skítugt allt þetta fína ryk sem kemur þegar verið er að brjóta niður veggi. Þannig að nú er jólahreingerningin búin að hluta til, ekki alveg. Annars er ég búin að vera heima núna í gær og svo í dag með stubbuna veika, gaman gaman, hún er nú að hressast og skilur ekkert af hverju hún þarf að hanga inni en svona er þetta bara. Er að fara á jólahlaðborð á laugardgskvöldið með þrif og ræstivörum og svo aftur 1 des með Eimskip, nóg að gera í átinu. Ætlaði að reyna að vera dugleg í dag og gera eitthvað á heimilinu en það verður nú örugglega eitthvað minna úr því þar sem Jóna Ríkey er orðin voða leið og maður fær ekki mikinn frið. En vikjum að jólunum. Mamma verður trúlega hjá mér um jólin og Ásta ætlar að vera hjá pabba. Ég er búin að baka eina smákökusort eins og þið vitið sem hafið lesið bloggið hjá minni ástkæru systur þá voru þær ekki ALSLÆMAR En mér finnst þær bara góðar, ætla að sjá til hvort ég nenni í sörubakstur á sunnudaginn en það er verið að herja á mig að drífa í því enda eru þetta einu kökurnar sem eru alveg örugglega étnar á heimilinu, en ég er að hugsa um að bíða með þær svo ég eigi nú eitthvað þegar jólin koma því ég á einn sem mun klára þær strax... og getiði nú ? En mesti munurinn er að ég er löngu búin að kaupa allar jólagjafir og það er frábært og nú er ég að fara í jólakortin. Jæja ég nenni ekki að blogga meira kveðja úr Furulundinum
»
28.10.2007 14:21:16 / slaugabeib
Jæja góðan daginn allir saman Stórframkvæmdir framundan í Furulundinum, loksins er glugginn að koma á baðherbergið, búin að bíða eftir því lengi en hann er tilbúin í geymslunni og Steypusögun Norðurlands kemur á miðvikudaginn til að saga út fyrir honum, og það er ekki allt búið enn, ætlum að brjóta niður vegginn á milli herbergjanna þ.e.a.s gestaherbergisins sem er nú reyndar aðeins sýnishorn það er svo lítið og svo Jónu Ríkeyjar herbergis, gera eitt herbergi úr því sem verður þá sæmilegt og við hjónakornin ætlum að flytja okkur þangað og Jóna Ríkey fær hjónaherbergið. Þetta var ekki að nýtast alveg nógu vel þessi herbergi í sitthvoru lagi. Þessir krakkar eiga líka svo mikið dót og þegar vinkonurnar eru komnar með þá er ekkert pláss. En þetta verður mjög fínt og alveg nóg fyrir okkur stórfjölskylduna, það er þá alltaf hægt að setja upp vegg aftur EF á þarf að halda. Þannig að nú er bara allt á tjá og tundri, verið að hreinsa út úr herbergjunum öllum og stofan alveg undirlögð,, gaman gaman Dreif mig í þetta verk í dag þar sem vikan verður ströng hvað vinnu varðar og svo renni ég í Borgó á morgun til að vera viðstödd jarðaförina hjá honum Dóra vini mínum á þriðjudaginn en hann varð bráðkvaddur við vinnu sína þann 18 okt s.l blessuð sé minning hans. Annars er allt gott að frétta af okkur hér, Axel búin að vera að vinna mjög mikið og ég er búin að í Reykjavík á námskeiðum svo það er búið að vera nóg að gera, en það er nú búið í bili. Nú fer maður bara að hugsa til jólanna ótrúlegt en satt þá er ég búin að kaupa allar jólagjafir nema 2-3 og það er nú aldeilis fagnaðarefni, næst eru það jólakortin þetta verður fljótt að líða það er nú ekki hægt að segja annað. Jóna Ríkey er voða spennt fyrir jólunum enda á hún líka afmæli þannig að spenningurinn verður meiri fyrir vikið. Kíkti aðeins í Kefló í síðustu viku til Halldóru og gisti þar eina nótt, maður er nú ekki lengi að renna þangað, það var voða fint og allir eldhressir á þeim bænum. Verð nú að segja að ég er mjög stolt af henni mömmu minni þessa dagana, sú gamla er bara hætt að reykja segi nú ekki að hún hafi ekki fengið hressilega viðvörun en hún virðist alveg hafa verið meðvituð um það og hefur ekki reykt einn einasta smók í ja bráðum 6 vikur og ætlar sér ekki að byrja aftur og líður líka bara svona miklu betur, bara áfram mamma. Er allavega meðan það er og maður verður bara að taka sér einn dag í einu þetta er örugglega ekki létt verk þegar fólk er búið að reykja í 40 ár. Jæja kveð í bili, allir biðja að heilsa Áslaug
»
09.10.2007 14:24:13 / slaugabeib
Jæja góðan daginn gott fólk. Erum komin heim eftir viðburðaríka ferð til Kína. Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi verið mikil upplifun og maður hefði alls ekki viljað sleppa þessu, maginn reyndar eitthvað að stríða mér núna en ég held að það sé bara þreytunni að kenna, varla mikið matnum í Kína því það var nú ekki mikið smakkað af þessum dýrindis mat eða þannig.... oj Ég er að hugsa um að deila aðeins með ykkur ferðasögunni. 3.okt miðvikudagur Keyrt suður að morgni, útréttað aðeins í Reykjavík og svo heimsóttum við mömmu sem var komin heim af sjúkrahúsinu og ætlaði að dvelja yfir þessa komandi helgi hjá Herdísi systur sinni þar sem við allar systur yrðum erlendis á sama tíma, það var bara gott mál og hún var orðin svona þokkalega hress en ennþá mjög máttfarin. Náðu svo í Einar og Ellu, fengum okkur að borða og brunuðum til Keflavíkur. Fljúga átti kl 22:00 en frestaðist til um klukkutíma. Þegar allir voru komnir út í vél kom babb í bátinn og einn hreyfillinn vildi ekki í gang, og nú urðu góð ráð dýr sem endaði með 2ja tíma bið ( í flugvélinni ) meðan verið var að gera við. Jæja í loftið fórum við og það ekki fyrr en kl 01:00 og beið okkar 11 og 1/2 tími í flugi, þannig að við vorum s.s búin að vera í flugvélinni í tæpa 13 tíma, gaman gaman. En það kom algerlega á óvart hvað þetta var lítið mál að fljúga svona lengi, þetta var næturflug þannig að maður gat sofið allavega svaf ég í einhverja 5 tíma og það telst nú gott miðað við mig, svo sváfu aðrir minna og aðrir meira. Svo var bara kjaftað og lesið og flestir bara í mega stuði, þetta leið ótrúlega hratt. 4.okt fimmtudagur Lending í Qingdao kl: 20:00 á staðartíma. Upphóftst mikil skirffinska og ógrynni af pappírum sem þurfti að fylla út, þetta er nú ekki eins og að skreppa til london eða þess háttar, mun flóknaðar sístem. Móttökunefnd beið okkar. Við urðum strax undrandi á því um leið og við komum inn í flugstöðina hvað okkur var vel tekið og allir svo kurteisir og vildu allt fyrir okkur gera og það átti svo seinna eftir að koma í ljós að við vorum gjörsamlega eins og kóngafólk. Þeir kunna sko að taka á móti svona hópum kínverjarnir því þetta gekk allt svo smurt fyrir sig að við þurftum varla að hugsa, vorum búin að fá úthlutað númeri í hvaða rútur við ættum að fara og þegar Axel og kom að rútunni og ætlaði að vippa töskunni í farangursrýmið þá kom bílstjórinn hlaupandi á fullu, nei þetta átti hann að gera við áttum ekki að gera neitt svona sjálf, bílstjórarni uppstrílaði með hvíta hanska, allt fullt af löggum og læti vissum ekki alveg hvað var í gangi fyrr en við svo lögðum á stað..... okey... við s.s fórum í lögreglufylgd á hótelið.... það var bara búið að loka fyrir alla umferð á leiðinni frá flugvellinum og á hótelið löggur allsstaðar og svo stóð fólk í köntunum og veifaði til okkar, vá hvað við vorum fræg. Gengið var frá öllu í rútunni á leiðinni, við meira að segja tékkuð inn á hótelið og fengum lyklana þannig að ekki þurftum við að fara í biðraðir þar til að tékka sig inn. Þegar við komum á hótelið sem var ekkert smá flott þá vorum við leidd inn í sal þar sem beið drykkir og léttar veitingar og þegar við komum fram aftur biðu töskurnar bara eftir okkur þannig að við gátum skundað beint upp á herbergi og græjað okkur því okkar beið svo seinna um kvöldið kvöldverðarhlaðborð, rosalega flott. Farið var nú bara snemma að háttinn. 5. okt föstudagur Dagurinn tekinn snemma og skellt sér í morgunverð, svo í skoðunarferð sem lagði að stað frá hótelinu ( sem heitir Shangri-La ) kl: 09:00. Keyrt var víða um borgina og skoðaðir mismerkilegir staðir að sumum fannst og síðan boðið upp á hádegismat á voða flottum veitingastað og það átti að bjóða okkur upp á "local food" eins og kynnirinn sagði, þá byrjaði nú ballið, þetta var s.s rosalega flottur seafood veitingastaður í háum skala hjá kínverjum en maturinn maður.... vó... borin var í okkur hver rétturinn á fætur öðrum og við sátum bara og gláptum.... þetta var frekar mikið óg... í fyrsta lagi vissi maður ekkert hvað margt af þessu var, þetta var mjög ógirnilegt, mikið til hrátt. Kínverjar borða mjög mikið seafood og hann er eldaður á alla vegu, mjög ólystugur er óhætt að segja, við erum að tala um alls kyns tegundir eins og t.d kolkrabba,,, já þetta var ekki alveg við mitt hæfi en maður aðeins nartaði pínu svona til að geta sagst hafa smakkað en sumt var held ég betra að koma ekki nálægt að manni sýndist. Maturinn þarna er vægast sagt mjög spes enda er þetta spes samfélag og mikið ólíkt og okkar, mjög gaman að kynnast þessu. En bjórinn var góður og stóð ágætlega með manni. Reyndar kom það svo á daginn að það var ekki gott að drekka mikið af honum á svona ferð um borgina því já nú komum við kannski að aðal sjokkinu sem ég varð fyrir í þessari ferð, klósettmenningunni..... vó.....vó.. við stoppuðum fyrr í þessari skoðunarferð á stað við sem var við strandlengjuna og þar var gefin klukkutími til að labba og skoða sig um, ok svo kom að því að fólk þarf að pissa og ég var þar engin undantekning, ég og önnur sem var með mér fundum nú eitthvað sem benti til þess að þar væri klósett og í fyrsta lagi þá þarf maður að borga fyrir að pissa svona á almenningssalernum ( sem er reyndar ekki rétt að kalla salerni ) ok, borguðum og þegar við nálguðumst byrjaði þessi þvílíka lykt sem var reyndar nóg til að fara ekki lengra en við vorum nú alveg að pissa í okkur svo við ákváðum að sjá hvað væri þarna.... NEI TAKK... það er ekki verið að grínast ég kom í dyrana og þar voru bara svona básar ( opnir ) og holur í gólfunum, þetta var bara eins og flór, og ég þarna sátu kerlingarnar bara og voru að kúka og sumar voru meira að segja með klút fyrir vitunum, og ég fríkaði út, gat ekki með nokkru móti farið þarna inn og hugsað til þess hvaða ógeð myndi þrífast þarna... jedúdda mía, sú sem var með mér var svo rosalega að pissa á sig að hún hafði ekki val um annað en að láta sig hafa það en ég ákvað að ég skyldi þrauka og ef ekki myndi ég frekar pissa á mig... og svo grenjuðum við úr hlátri þegar við vorum komnar úr sjokkinu... vá þetta var ótrúlegt. Þannig að eg ákvað að setja stopp á bjórinn í bili. Eftir hádegi var okkur svo ekið á hinn svokallaða Jimo lu markað og það er eitthvað sem engin ferðamaður ætti að láta fram hjá sér fara, 4 hæðir af allskonar vörum og þar er prúttað og það er alveg með ólíkindum hvað hægt var að versla fyrir lítinn pening ( yuan heitir gjaldmiðillinn í Kína ). Við misstum okkur aðeins í að versla á stuttu, keyptum til að mynda 3 kínakjóla, þeir eru svo hrikalega flottir þessir silkikjólar algert æði, síðan var þarna heil hæð bara með skóm þannig að ég keypti nú jólaskóna á Jónu Ríkey og aðra til og ótrúlegt en satt þá keypti ég mér ekki neina skó. Um kvöldið var svo veisla í boði Eimskips á hótelinu alveg svakalega flott, maturinn þar var jú kannski aðeins skárri en fyrr um daginn, allavega var hægt að smakka á sumu þannig að það var ekkert svo alslæmt en hákarlasúpuna borðaði ég ekki og lái mér hver sem vill.... síðan var djammað aðeins fram eftir nóttu að hætti íslendinga en á hótelinu var auðvitað bar og svo næturklúbbur. 6. okt laugardagur Opnunarhátíð á frystigeymslu Eimskips fyrir hádegi, haldið þangað í rútum og í lögreglufylgd að sjálfsögðu enda Óli forseti með í för, þetta var soldið fyrir utan borgina svo það var líka gaman að koma þangað og sjá aðeins annað landslag. Þetta var nú engin smá opnun og mikið um skreytingar og móttökurnar flottar, ræðuhöld ofl. Eftir hádegi vorum við svo bara að þvælast um, shoppa aðeins meira og svo um kvöldið fórum við nokkur út að borða og fundum loks veitingastað þar sem voru seldar steikur.... og það var sko orðið langþráð því sumir... nefnum engin nöfn... en fyrsti stafurinn er Axel hafði varla borðað örðu það sem af var ferðinni svo steikin var kærkomin, enda farin að missa nokkur grömm. Farið svona "nokkuð" snemma í háttinn enda maður þreyttur eftir ekki mikinn svefn nóttina áður. 7. okt sunnudagur Heimferð í dag. Þar sem okkur seinkaði aðeins á leiðinni út þá seinkuðu þeir heimferðinni um klukkustund. Nutum þess að sofa aðeins út og svo var pakkað í töskur og svo héldum við á vit ævintýrana, fórum niður í bæ og kíktum aftur á markaðinn og eyddum þar síðustu peningunum það þýddi allavega ekki að fara með þá heim því ekki er hægt að skipta þeim þar. Lagt að stað í loftið kl: 18:00 að staðartíma og lent heima kl: 22:00 að staðartíma eftir 11 og 1/2 klukkutíma í flugi sem var svo sem fínt því við þurftum ekki að millilenda eins og til stóð vegna hagstæðra vinda, annars hefði þurft að millilenda í Helsinki og taka eldsneyti en sem betur fer þurfti þess ekki að það gladdi okkar litla hjarta mikið enda hefð það þýtt 2 klst í viðbót. Þessi Kínaferð var alger snilld og ég vildi ekki hafa sleppt henni, óvist að maður fái svona tækifæri aftur. Það stendur mest uppúr hvað þessi ferð var rosalega skipulögð og þægileg og við þurftum varla að hugsa, á hótelinu vorum við nánast borin á honum þeirra þvílík var þjónustan. Herbergisþjónustan var t.d þannig að fyrri partin var komið og búið um rúmið og brotin saman fötin okkar, þvegið af okkur ef því var að skipta og svo var komið aftur á kvöldin og þá var tekið rúmteppið af rúmunum og gert klárt fyrir svefnin. Þjónar á hverju strái. T.d og það lýsir nú þessu kommúnistaríkinu að á karlaklósettunum á hótelinu s.s í lobbýinu þá var það þannig þegar Axel fór að klósettið að þar var maður sem skrúfaði frá krananum fyrir hann, setti sápu á hendurnar á honum og rétti honum svo þurrku til að þurrka sér og ef þú vildir þá burstaði hann skóna og svona sitt lítið af hverju hefði örugglega haldið við lillan ef hann hefði verið beðin. En maður er nú samt ekki alveg nógu hress núna eftir heimkomu þar sem maginn er í einhverju uppnámi, veit ekki alveg hvað er í gangi en allavega gengur ekki að koma neinu ofaní sig en það vonandi skánar með tímanum, maður nánast búin að sofa í sólarhring. Kveð í bili Zaijian ( bless á kínversku ) Það er ekkert smá gaman að skoða þessa kínversku, lærðum nokkur orð. Smá sýnishorn en ég legg það ekki á mig að skrifa á þetta á kínversku það er doltið annað mál. Ni hao = halló Xiexie = takk fyrir Bukeqi = Ekkert að þakka Qing wen = Afsakið Nin guixing ? = Hvað heitur þú ? Ni shi cong nar lai de ? = Hvaðan ertu ? Sher you ren hui shuo yingyu ma ? = Talar einhver hérna ensku ? Skemmtilegt ekki satt ???
»
30.09.2007 17:27:54 / slaugabeib
Heil og sæl öll sömul. Já mikið rétt við hjónakornin erum á leiðinni til Kína.... voða spennt. Fljúgum út á miðvikudaginn 10 tíma flug púfff en beint flug og það verður örugglega bara gaman. Erum s.s að fara út ásamt 500 öðrum íslendingum Eimskipsstarfsfólki og fylgdarliði til Qingdao þar sem Eimskip er að opna og vígja stærstu frystigeymslur ja ég held bara heims. Okkur starfsfólkinu bauðst s.s að koma með fyrir sport "prís" og auðvitað skelltum við okkur á það. Þetta er reyndar stutt ferð en við komum aftur á aðfararnótt mánudagsins, erum að fara 12 héðan frá Akureyri og erum öll voða spennt, allir búnir að láta sprauta sig. Annars er allt gott að frétta af okkur, erum reyndar nýkomin heim frá Danmörku, vorum þar í viku hjá Sibbu sem býr í Árósum, aldeilis höfðinglegar móttökur þar í höllinni eins og Sibbu er einni lagið, heimsóttum að sjálfsögðu líka Stefán og fjölskyldu og eyddum tíma með þeim og þar voru nú ekki minni móttökur hvort sem var í mat eða drykk, Stefán sannaði sig vel og eldaði handa okkur alveg dýrindismat og barnaafmælið maður það var nú bara eins og flottasta fermingarveisla, hittum líka Árna og Brynju og svo heimsóttum við auðvitað Krissa og Selmu sem eru bara akkúrat núna að bíða eftir frumburðinum sem ætti að koma núna þessa dagana. Skruppum svo auðvitað niður til Vandel og heimsóttum Örnu, hún er alltaf jafn hress og gaman að koma til hennar. Þannig að vikan var ansi fljót að líða og við þökkum ykkur öllum fyrir móttökurnar, eftir því sem mér skilst þá erum við á leiðinni aftur á þorrablótið sem verður í Árósum í febrúar, Stebbi búin að draga Sibbu með í nefndina ( þurfti reyndar ekki mikið til ). Þannig að við erum bara á faraldsfæti þessa dagana enda bara gaman að því. Jóna Ríkey ætlar að vera hjá ömmu sinni og afa hér á Akureyri þessa daga sem við verðum í Kína. Mikið hefur nú snúist um Kínaferðina síðustu daga þar sem við ákváðum eiginlega á síðustu stundu að fara þar sem ekki var víst að Axel kæmist út af vinnunni, það þurfti að fá visa áritun frá kínverska sendiráðinu og það vildi nú svo skemmtilega til að kínverska sendiráðið er akkúrat lokað í næstu viku, þannig að það þurfti að drífa þetta í gegn senda pappíra, passa og myndir suður með flugi og koma þessu öllu í ferli, en það gekk nú allt vel og þetta var klárt á föstudaginn. Systur mína er akkúrat að fara líka út á sama tíma, ætla að skella sér til Bandaríkjana í Mall of America í alveg örugglega VERSLUNARFERÐ DAUÐNS ef ég þekki þær rétt og Gunni ætlar að láta sig hafa það að fara með þeim það verður gaman fyrir hann því yfirleitt finnst karlmönnum ekki gaman að versla. Við versluðum nú þónokkuð í DK aðallega á Jónu Ríkey föt fyrir veturinn. Jæja nú hætti ég í bili, blogga þegar ég kem frá Kína og segi ykkur ferðasöguna. Kveðja frá Slaugunni.
»
22.09.2007 14:08:43 / slaugabeib
Ohh það er alltaf verið að klukka mig eitthvað svo ég get ekki skorast undan lengur. En annars .... heil og sæl esskurnar, maður er ekkert að standa sig í blogginu, en svona er það bara... Hér koma 8 staðreyndir um sjálfan mig.. 1. Hrikalegur lélegur bloggari. 2. Nýkomin heim frá DK með slasað rófubein, ekki alveg sátt. 3. Hrikalega geðstirð þegar ég er þreytt, get nánast drepið mann og annann.. OG dóttir mín erfði greinilega þennan eiginleika frá mér svo mikið er víst. 4. Stígvélafíkill segir systir mín (Ásta) ... var reyndar að kaupa ein áðan.... Á ekki nema 8 pör en það er ekkert svo mikið finnst ykkur það ??? 5. Alltof góð við sjálfan mig og leyfi aukakílóunum bara að vera í friði og hafa sína hentisemi. 6. Með mjög lítið hugmyndaflug á sumum sviðum eins og hvað varðar mat.... finnst ekki sérlega gaman að elda...EN finnst samt gott að borða það er ekki málið. 7. Finnst rosalega gaman að ferðast og fara til útlanda sérstaklega. 8. Á við mikla óþolinmæði að stríða og þann eiginleika erfði líka dóttir mín svo við erum bara góðar saman he he Jæja þetta var nú svona smá um sjálfan mig... og nú klukka ég............ Hörpu Ingimundar, Guðbjörgu Guðmunds, Sibbu dönsku, Ástu Gúst, Siggu gellu, Eydísi, Heiðdísi ( sem ekki hefur bloggað síðan um jól ) og síðast en ekki síst Paul Robinsson. Kveðja frá slaugu
»
26.08.2007 10:27:17 / slaugabeib
Heil og sæl gott fólk... Allt gott að frétta af Akureyrinni, Akureyrarvaka menningarhátíð Akureyrar nýlokið og margt skemmtilegt í boði en við erum greinilega ekki mikið fyrir menninguna tókum ekki mikinn þátt, rigning mikið til í gær en virðist vera að gera þessa svaka blíðu núna. Ætlum að taka daginn í það að festa niður rólum sem fjárfest var í á dögunum, held að það verði ekki hjá því komist sú stutta farin að ýta all rækilega á pabba sinn með það. Annars er nú 3 vikna tímabili að ljúka hjá Axel í vinnunni þar sem Rúnar og Birna eru að koma heim frá Spáni í dag, held að Axel sé alveg sáttur við það búið að vera ansi mikið áreiti og mikið að gera hjá honum þessa 3 vikur sem þau eru búin að vera í burtu að stjórna hlutunum og með símaáreiti þeirra beggja enda hélt maður á tímabili að síminn væri gróinn orðin við hann, en allt tekur þetta enda og þetta gekk bara mjög vel en hæfur maður í brúnni. Það er engu að leyna að ég hef verið léleg við að blogga og síðast þegar ég bloggaði var ég að fagna nýja fjölskyldumeðliminum honum Jónatan sem er alveg yndislegur... EN hann staldraði nú stutt við greyið þar sem stuttan á heimilinu er líklega með ofnæmi fyrir honum eða kanínum öllu heldur og þá líklega dýrum yfirleitt, það kemur nú í ljós eftir helgi þar sem tekið var próf á henni fyrir helgi. En þetta lýsir sér þannig að fyrir c.a 3 vikum þá steyptist hún út í rauðum flekkjum og líkaminn var gjörsamlega undirlagður frá toppi til táar og mikill sviði og kláði og við tóku andvökunóttin mikla, síðan er búið að fara á milli lækna, sá fyrst var alveg pottþéttur að þetta væri eitthvað sem hún borðaði, gátum engan vegin áttað okkur á því hvað það gæti verið, ég spurði hvort þetta gæti verið kanínan en hann hélt nú ekki því við vorum búin að vera með hana í 2-3 vikur og það hefði þá verið komið í ljós enda legðist það meira í augu og nef og viti menn síðan kom að því að hún þrútnaði öll í andliti og leka fór úr nefi í kjölfarið svo það endaði með því að kanínan var látin fara og heimilið þrifið hátt og lágt og Jóna Ríkey skánaði til muna en samt er þetta voða skrítið því þetta blossar upp núna svona annað slagið og svo er hún fín á milli, held samt á ég geti rakið það yfirleitt til kanínunnar og ef þetta er hún þá er hún svo viðkvæm að hún má ekki leika sér við krakka sem eiga kanínur... En við erum að verða leið á að bíða og fá þetta staðfest því ef þetta er ekki það þá þarf að byrja upp á ný að leita að ofnæmisvaldinum.... því ofnæmi er þetta greinilega.... Hann reyndar tók líka prufu með því að þetta gæti verið einhver byrjun á frjókornaofnæmi þannig að þá fáum við það líka staðfest. Æi greyið þetta er ekkert grín þegar þetta blossar svona upp og núna síðast á föstudagskvöldið var hún algerlega friðlaus og fæturnar á henni eins og þrefaldar með sviða og kláða hún virðist finna mest fyrir þessu í fótum, ég gat ekki ímyndað mér af hverju þetta blossaði upp þá nema að ég gómaði hana hér úti og þá var hún að bjástra með einhvern kött sem hún var svo komin með inn... gæti verið það... þannig að það var lítið hægt að gera en að hjúkra með kremum og köldum bökstrum þangað til að þetta hjaðnaði og síðan er hún bara búin að vera fín, þetta er allt hið skrítnasta mál.. En við erum ekki formlega búin að láta Jónatan fyrr en við höfum fengið staðfest að hann hafi verið valdur af þessum óþægindum, mamman og pabbinn sjá meira eftir honum heldur en Jóna Ríkey enda var hann svo æðislegur, hann heldur örugglega að hann sé hundur, eltir mann á röndum og vill bara láta leika við sig og gæla. Hann er núna í pössun hjá Huldu frænku hans Axels og þar eru sko 2 dömur sem dedúa þvílíkt við hann ég er mest hrædd um að við fáum hann ekkert til baka ef í það færi. Jæja en nú er Danmerkurferð á næsta leiti, maður getur eiginlega sagt hin árlega því við erum búin að fara nánast á hverju ári og Jóna Ríkey er að fara í þriðja sinn á 4 árum til Danaveldis. En nú er stefnana teki á Aarhus city að heimsækja Stebba og fjölskyldu og Sibbu gellu. Það verður rosalega gaman og við hlökkum mikið til. Eigum flug út þann örlagaríka dag 11 sept og heim aftur 18 sept, það dugir ekkert annað en vikan í þetta. Jæja esskurnar heyrir í ykkur seinna, ætla að hengja út þvottinn úr fyrstu þvottavél dagsins, þær eiga eftir að verða ein til tvær í viðbót því mannskapurinn er búin að vera ansi latur síðustu viku og andlaus... verðum í bandi Áslaug
»
26.07.2007 18:20:03 / slaugabeib
Oooog nú haldið þið að það sé eitthvað
annað sem ég er að tala um... en lítill drengur er
komin í fjölskylduna, hann er 7 vikna og heitir
Jónatan. Hann er brúnn á lit, loðin með síð eyru og
alveg óendanlega sætur, borðar okkur ekki út á
gaddinn, borðar aðeins grænfóður... já viti menn
lítill kanínustrákur er komin á heimilið, mini loop
heitir sú tegund og er miklar kelirófur. Hann er
einmitt með okkur á ferðalagi þessa dagana þar sem hann var
bara keyptur í gær og við eigum eftir að ferðast víða
um land, erum nú að svo stöddu í Nesinu í
bongóblíðu, ætlum að úða aðeins í okkur í kvöld hjá
pabba og Ingu Finnu skilst að humar ásamt tilheyrandi verði á
borðum, nammi namm. Fjölskyldan er s.s öll
í sumarfrí og er á ferðalagi, ætlum að stoppa í nesinu
fram að helgi og halda svo suður og austur á land.
maður skellir sér örugglega hringinn með gullvagninn að
sjálfsögðu. Annars erum við bara svona að láta þetta
ráðast af veðri hvað við stoppum lengi. Erum búin að
vera að taka hús á vinum og ættingjum og leggjast upp á
Ástu, síðan í kvöld bætast Halldóra, Gunni og Júlíus í
hópinn svo það verður glatt á hjalla og eins gott að Ásta er
komin í stærri íbúð, fyrir okkur allavega en veit ekki hvað
henni finnst um að við ryðjumst svona inn en mér finnst nú
líklegt að henni finnist það bara gaman. Jæja þetta var
nú svona stutt blogg úr fríinu, aldrei að vita nema ég
láti vita af mér síðar...
Kveðja frá Kvíaholti 10
Borgarnesi
Áslaug
»
20.07.2007 23:09:51 / slaugabeib
Nei halló halló
Já það er ég þessi sem nenni aldrei að blogga, en viti menn,
fékk andann yfir mig rétt í þessu og ætla að rita nokkrar línum um
það sem er í gangi... SUMARFRÍ, SUMARFRÍ, SUMARFRÍ, ok blesssss...
nei nú er maður bara í grínunu en ekki með að ég sé í sumarfrí og
það er ótrúlega "næs" búin með 2 vikur og á 2 vikur eftir, samtals
4 yndislegar vikur. Það er svo sem ekki búið að bralla neitt
sérstakt í fríinun nema bara að hafa það gott og nota góða veðrið,
skelltum okkur suður í brúðkaup þann 07.07.07 en ekki hvað og það
var sko veisla í lagi, athöfnin var í heilsulindinni í bláa lóninu
og veislan sem taldi ekki nema um 300 manns var svo í Festi
félagsheimilinu í Grindavík, svaka flott og mikil veisla með
dansiballi og öllum pakkanum, en hún Gróa mín átti þetta svvooooo
skilið. Þetta var ss hún Gróa sem var að gifta sig og hún er mamma
vinkonu minnar hennar Bínu. Þetta var rosalega gaman, svo sendi ég
kallinn norður með flugi og við mæðgur stoppuðum í nokkra daga í
nesinu í þessari brakandi blíðu og það var rosalega fínt. Drifum
okkur svo norður og höfðum það gott í sólinni duglegar að fara í
sund enda er maður nett eins og við höfum verið á Spáni. Loksins
datt Axel í sumarfrí í vikunni (langþráð) þannig að litla
fjölskyldan hefur bara verið að njóta þess að vera saman síðustu
daga og reyndar taka soldið á móti gestum sem var voða gaman, Ásta
Gúst vinkona var hér fyrir norðan með fjölskylduna og við vorum að
þvælast með þeim og svo voru Haukur og Gunna vinafólk frá
Reyðarfirði hér þannig að það var nóga að hitta. Á morgun er svo
hið árlega fjölskyldumót hjá fjölskyldunni hans Axels (systikini
mömmu hans og co að hittast ) og síðan á að leggja land undir fót
eftir helgi með gullvagninn að sjálfsögðu og taka kannski eins og
einn hring um landið, norður-suður allt óráðið, fer eftir hvað
Siggi stormur hefur að segja næstu daga. Í dag var alveg
rosalega gott veður 23 gráður í forsælu og við vorum í því að hafa
það gott. Það er rosalega gott að fá svona gott frí úr
vinnunni til að hlaða batteríin, fór reyndar aðeins í vinnuna
í byrjun vikunnar til að skila smá af mér, æi það var nú gott
að geta svo bara haldið heim og fríast áfram. En viti
menn.... hvað haldið þið að hafi gerst svona á milli blogga
það er nú ekki svo langt síðan ég bloggaði eða hvað ?? Axel
varð að ósk sinni með flatsjónvarpið og hér er mætt á heimlið 42"
plasma flatskjár og ég verð nú að viðurkenna það er rosalega flott
en það kom nú reyndar ekki til nema að gamla tuttuguogáttatomman
gaf sig eiginlega endanlega, ég nennti ekki lengur að tjónka
við það, jæja ekki nóg með það, þegar þessi herlegheit
voru komin í hús kallaði það nú á breytingar í stofunni,
þetta fittaði nú ekki alveg inn í hana eins og hún var þannig
að ég fékk að kaupa ný húsgögn,,, jibbý og heimilið
hefur tekið miklum breytingum að mér finnst með því að kaupa skápa
og skenk og svo með smá tilfærslu og ferðum í gámastöðina
þannig að sjónvarpið sem átti að kosta svo lítið kostaði nú
soltið meira þegar upp var staðið en þetta er bara flott og við
erum sátt. Það var nú bara þannig að ég ætlaði að láta mömmu
hafa svarta glerskápin sem mörg ykkar hafa nú séð og þegar við
fórum að færa hann til og flytja þá bara hrundi hann takk
fyrir, en hann er búin að þjóna sínu greyið og greinilega
mótmælti harðlega að verða fluttur aftur suður á land, nei
takk nú er ég búin með mitt. Svo hann fékk bara að fara
flotti skápurinn úr RL búðinni sem var orðin ja allavega tíu ára
gamall og lifa tímanna tvenna.
Við erum búin að panta okkur ferð út til DK og ætlum að fara
þann fræga dag 11 september og vera í vikutíma, veit að Sibbu
hlakkar voða til enda skiljanlega hún saknar okkar voða
mikið, en Sibba mín við ætlum nú ekki bara að hitta þig þú verður
nú aðeins að sleppa af okkur hendinni svo við getum lika hitt aðra
ættingja, veit það verður erfitt en það verður að reyna og
svona til að svara þér þá er líka bölvað álag að vera svona í
sumarfríi og engin tími til að vera að bloggast allann daginn
he he. En Sibba er svo spennt að hún ætlar að koma heim og
fara líklega með okkur út svo hún missi ekki af einni mínútu með
okkur. En svona að öllu gríni slepptu verður þetta voða
gaman og við ætlum að sjálfsögðu að hitta hina elskulegu fjölskyldu
í bláa húsinu og fara í bambaskóg og allt sem því fylgir,
Jóna Ríkey ætlar sko í þennann bambaskóg það er alveg á hreinu.
Jæja esskurnar nú ætla ég að halda áfram að vera í sumarfríi og
læt heyra frá mér síðar ef ég hef tíma til
Bæ
Áslaug
»
Síður: 1 2 3 4
|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 16 nóvember
|